139. löggjafarþing — 35. fundur,  25. nóv. 2010.

varamaður tekur þingsæti.

[10:31]
Horfa

Forseti (Ásta R. Jóhannesdóttir):

Borist hefur bréf frá Árna Johnsen, 9. þm. Suðurk., um að hann geti ekki sótt þingfundi næstu tvær vikur sökum veikinda. Í dag tekur sæti á Alþingi varamaður hans, Íris Róbertsdóttir grunnskólakennari. Kjörbréf Írisar Róbertsdóttur hefur verið rannsakað og samþykkt. Hún hefur ekki áður tekið sæti á Alþingi og ber því að undirrita drengskaparheit að stjórnarskránni, samkvæmt 2. gr. þingskapa.

 

[Íris Róbertsdóttir, 9. þm. Suðurk., undirritaði drengskaparheit að stjórnarskránni.]