139. löggjafarþing — 39. fundur,  30. nóv. 2010.

tilkynning um dagskrá.

[14:01]
Horfa

Forseti (Ásta R. Jóhannesdóttir):

Gera má ráð fyrir fleiri en einum fundi í dag og atkvæðagreiðslum.

Upp úr kl. 14.30 í dag fer fram umræða utan dagskrár um mótframlagsgreiðslu ríkisins í Lífeyrissjóð bænda. Málshefjandi er hv. þm. Sigurður Ingi Jóhannsson. Fjármálaráðherra Steingrímur J. Sigfússon verður til andsvara. Umræðan fer fram skv. 2. mgr. 50. gr. þingskapa og stendur í hálfa klukkustund.