Afbrigði um dagskrármál.
Frú forseti. Við greiðum hér atkvæði um afbrigði og þetta er eiginlega með ólíkindum, frú forseti. Þannig er að forseti lýsti því yfir í byrjun þings að þetta ætti að vera fjölskylduvænn vinnustaður. Hann hefur sko aldeilis ekki verið það.
Í öðru lagi töluðu menn um góða verkstjórn. Þetta er sko ekki góð verkstjórn. Hv. þm. Árni Þór Sigurðsson sagði að lengi mætti gott bæta. (ÁÞS: Er það ekki satt?) Nei, það eru öfugmæli. (ÁÞS: Er það ofsagt?) (Gripið fram í: Lengi má vont bæta.) Ég hef ekki lesið þetta frumvarp, þetta eru 38 síður. Ég var að fá það í hendurnar rétt áðan og ég legg til og geri það að tillögu minni til forseta að eftir að búið er að mæla fyrir málinu fresti hann því um svona hálftíma svo að ég nái því að lesa pappírinn. Ég get ekki rætt um mál sem ég hef ekki lesið, það er útilokað.