139. löggjafarþing — 43. fundur,  7. des. 2010.

tilkynning um dagskrá.

[14:01]
Horfa

Forseti (Ásta R. Jóhannesdóttir):

Kl. þrjú í dag fer fram umræða utan dagskrár um stöðu Íbúðalánasjóðs. Málshefjandi er hv. þm. Guðlaugur Þór Þórðarson. Félags- og tryggingamálaráðherra Guðbjartur Hannesson verður til andsvara. Umræðan fer fram skv. 2. mgr. 50. gr. þingskapa og stendur í hálfa klukkustund.