139. löggjafarþing — 44. fundur, 8. des. 2010.
mál frá sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.
Frú forseti. Ég vil þakka hæstv. landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra fyrir þessi svör. Það er rúm vika eftir af þessu haustþingi og hæstv. ráðherra boðar að umrædd frumvörp líti dagsins ljós á næstu dögum. Að sjálfsögðu ber að fagna því þó að ég hefði gjarnan viljað sjá þau koma fyrr hingað inn. Ég velti því fyrir mér hversu mikill hraði er á þessum málum og spyr hæstv. landbúnaðarráðherra hvort hann gerir ráð fyrir að einhver þeirra verði samþykkt á þessu haustþingi.