139. löggjafarþing — 55. fundur,  18. des. 2010.

vextir og verðtrygging o.fl.

206. mál
[14:07]
Horfa

Margrét Tryggvadóttir (Hr) (um atkvæðagreiðslu):

Forseti. Ég vil ítreka orð mín, mér finnst fullkomlega galið að ganga frá þessu máli meðan enn eru í gangi dómsmál í Hæstarétti um lögmæti og vexti húsnæðislána. Þau eru væntanleg fyrir Hæstarétt 19. janúar.