139. löggjafarþing — 58. fundur,  18. des. 2010.

þingfrestun.

[14:44]
Horfa

forsætisráðherra (Jóhanna Sigurðardóttir) (Sf):

„Forseti Íslands gerir kunnugt:

Að ég, að tilskildu samþykki Alþingis, veiti forsætisráðherra umboð til þess að fresta fundum Alþingis, 139. löggjafarþings, frá 17. desember 2010 eða síðar, ef nauðsyn krefur, til 17. janúar 2011.

Gjört á Bessastöðum, 15. desember 2010.

Ólafur Ragnar Grímsson.

____________________

Jóhanna Sigurðardóttir.

Forsetabréf um frestun á fundum Alþingis.“

Samkvæmt þessu umboði og með vísan til samþykkis Alþingis lýsi ég hér með yfir því að fundum Alþingis, 139. löggjafarþings, er frestað.

Leyfi ég mér að þakka hv. alþingismönnum og starfsmönnum þingsins fyrir krefjandi störf í þágu lands og þjóðar á árinu sem er að líða um leið og ég óska þeim, svo og landsmönnum öllum, farsældar á nýju ári.