139. löggjafarþing — 62. fundur,  20. jan. 2011.

neysluviðmið.

[11:15]
Horfa

Birgitta Jónsdóttir (Hr):

Frú forseti. Margir aðilar úti í samfélaginu bíða eftir því að fá neysluviðmið. Samkvæmt frétt á vef RÚV þann 17 janúar 2011 hefur drögum að neysluviðmiði sem sérfræðingahópur hefur reiknað út verið skilað til velferðarráðuneytisins. Hver eru umrædd neysluviðmið og hvers vegna hefur ráðuneytið ekki upplýst um þau enn þá?