139. löggjafarþing — 65. fundur,  26. jan. 2011.

umgengni um nytjastofna sjávar.

203. mál
[14:44]
Horfa

Frsm. sjútv.- og landbn. (Atli Gíslason) (Vg):

Frú forseti. Ég mæli fyrir nefndaráliti frá sjávarútvegs- og landbúnaðarnefnd um frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 57/1996, um umgengni um nytjastofna sjávar, með síðari breytingum. Málið varðar vigtun afla, breytingu á reglum þar að lútandi og dagsektir.

Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Jóhann Guðmundsson frá sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, Eyþór Björnsson frá Fiskistofu og Jónas Rúnar Viðarsson og Sigurjón Arason frá Matís ohf. Umsagnir bárust frá ýmsum aðilum sem taldir eru upp í nefndarálitinu.

Með frumvarpinu er áætlað að gera breytingar á 12. gr. laga um umgengni við nytjastofna sjávar þannig að ábyrgð á því að ganga úr skugga um að afli sem tekið er við hafi verið veginn samkvæmt gildandi reglum um vigtun sjávarafla sé ekki aðeins á herðum kaupanda afla heldur á höndum allra þeirra aðila sem stunda viðskipti með afla. Að auki skuli sömu aðilum skylt að fylla út og standa skil á skýrslum um ráðstöfun aflans. Þá er áætlað að kveða á um skyldu þeirra sem vanrækja skýrsluskil til Fiskistofu til greiðslu dagsekta og þannig stefnt að því að fjölga úrræðum stofnunarinnar til að bregðast við vanrækslu á þessum skýrsluskilum sem er afar mikilvægt fyrir alla stjórn í sjávarútvegi.

Af þeim sjö aðilum sem veittu umsögn um frumvarpið gerðu sex þeirra ekki athugasemdir við efni þess eða mæltu með því að það yrði samþykkt sem lög á yfirstandandi löggjafarþingi. Einn umsagnaraðili gerði athugasemdir við að frumvarpstextinn væri ekki nægilega skýr hvað varðaði það hvaða aðila væri skylt að fylla út og skila skýrslum um ráðstöfun afla. Var á það bent að slíkur óskýrleiki kynni að leiða til aukinnar vinnu fyrir þá sem stunda viðskipti með sjávarafla. Nefndin tekur undir framangreindar áhyggjur umsagnaraðilans og leggur til að a-lið 1. mgr. 1. gr. frumvarpsins verði breytt á þann veg að skyldan til að fylla út og skila ráðstöfunarskýrslum verði ekki einungis á herðum þeirra aðila sem stunda viðskipti með afla heldur einnig forsvarsmanna útgerða vegna viðskipta með afla eða afurðir vinnsluskipa.

Hvað heimild til dagsekta varðar vill nefndin minna á að dagsektir teljast til óbeinna þvingunarúrræða, þ.e. úrræða sem ætlað er að hafa áhrif á viljaafstöðu málsaðila með því að fá hann til hlýðni við boð eða bann sem hann hefur virt að vettugi. Þannig er markmið dagsekta að knýja fram ákveðna skyldu, en sé málsaðila ómögulegt að gegna skyldunni verður dagsektum ekki beitt. Af þeim sökum fela dagsektir það í sér að þær eiga sér stað vegna athafna eða athafnaleysis í nútíð eða framtíð og sé ekki á annan veg mælt falla þær niður þegar málsaðili uppfyllir skyldu sína. Hafi dagsektir verið innheimtar kemur ekki til neinna endurgreiðslna þótt skyldu sé síðar fullnægt. Nefndin áréttar sérstaklega að við töku ákvarðana um að beita dagsektum gilda reglur stjórnsýslulaga, m.a. um að viðkomandi eigi rétt á að tjá sig um málið að fenginni tilkynningu um það áður en ákvörðun um beitingu dagsekta er tekin. Þá skal ákvörðun um fjárhæð dagsekta m.a. byggð á sjónarmiðum um jafnræði og meðalhóf.

Leggur nefndin til að frumvarpið verði samþykkt með þeirri breytingu að við a-lið 1. gr. falli brott orðin „og tveir“ og að á eftir a-lið komi nýr svohljóðandi stafliður, með leyfi frú forseta:

„2. mgr. orðast svo:

Aðilar sem stunda viðskipti með afla og forsvarsmenn útgerða vegna viðskipta með afla eða afurðir vinnsluskipa skulu fylla út og skila skýrslum um ráðstöfun afla í því formi og með þeim hætti er ráðuneytið ákveður.“

Hv. þm. Ólína Þorvarðardóttir, Helgi Hjörvar og Björn Valur Gíslason voru fjarverandi við afgreiðslu málsins. Undir nefndarálitið rita hv. þm. Atli Gíslason, formaður og framsögumaður, Einar K. Guðfinnsson, Sigurður Ingi Jóhannsson, Jón Gunnarsson, Róbert Marshall og Ásmundur Einar Daðason.

Ég vek athygli á því, frú forseti, að fyrir 3. umr. verður lögð fram breytingartillaga um gildistöku laganna. Gildistökuákvæðið var miðað við 1. janúar en ekki náðist að flytja málið fyrir jól þannig að sjávarútvegs- og landbúnaðarnefnd áskilur sér rétt til að flytja breytingartillögu fyrir 3. umr.