139. löggjafarþing — 70. fundur,  3. feb. 2011.

samningar um ábyrgð á endurgreiðslu Tryggingarsjóðs innstæðueigenda til breska og hollenska ríkisins.

388. mál
[14:43]
Horfa

Frsm. 3. minni hluta fjárln. (Höskuldur Þórhallsson) (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vildi taka undir þakkir hv. formanns fjárlaganefndar, Oddnýjar Harðardóttur, og þakka sérstaklega starfsmönnum nefndarinnar — oft hefur manni hálfpartinn fundist níðst á þeim en þeir hafa í engu kvartað og reynst nefndinni ómetanlegir. Annars hef ég ekki neinu við það að bæta sem hér kom fram og þakka sömuleiðis.