139. löggjafarþing — 78. fundur,  24. feb. 2011.

skýrsla um endurreisn banka og fjármálastofnana.

[11:10]
Horfa

Forseti (Ásta R. Jóhannesdóttir):

Forseti vill geta þess að henni berast iðulega erindi sem þessi án þess að þau séu tekin til umræðu í þingsal. (GBS: Þetta er nú ekkert smámál.) En að sjálfsögðu mun forseti taka bréfið fyrir þegar það berst henni í hendur á næsta forsetanefndarfundi sem verður næstkomandi mánudag.