139. löggjafarþing — 84. fundur,  2. mars 2011.

skipun stjórnlagaráðs.

549. mál
[18:14]
Horfa

Valgerður Bjarnadóttir (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Það fer ekki á milli mála að hv. þingmaður er alveg hneykslaður upp fyrir haus. Ég ætla annars ekki að dvelja mikið við tilfinningalíf hans þó að hann dvelji við tilfinningalíf annars fólks í þingsal. Mig langar að spyrja hann: Hvað telur hann að eigi að gera í þessu máli?