málaferli um skipulag Flóahrepps.
Hæstv. forseti. Mér finnst gæta ákveðinnar ósamkvæmni í þeim svörum sem hæstv. umhverfisráðherra hefur gefið í þessum málum, sérstaklega þegar horft er til þess að þegar málið kom fyrir Hæstarétt krafðist ráðherra frávísunar, en frávísun felur það í sér að ekki fellur efnislegur dómur í málinu. Það er ákveðin brotalöm í þessari röksemdafærslu.
Hvaða lögfræðilegu sjónarmið lágu þarna að baki? Efnisleg niðurstaða lá fyrir úr héraðsdómi og samkvæmt ráðleggingum ríkislögmanns var ekki um það að ræða að möguleiki væri að koma nýjum lagasjónarmiðum eða nýjum rökum fram fyrir Hæstarétti, heldur var um að ræða áfrýjun á því máli eins og það kom fyrir í undirrétti. Ég spyr því: (Forseti hringir.) Fannst ráðherra ekki nokkuð bratt að fara gegn ráðum þess embættis sem hefur það sérstaka hlutverk að vera ráðherrum og ríkisstjórn (Forseti hringir.) til ráðlegginga um málaferli fyrir dómstólum?