139. löggjafarþing — 92. fundur,  15. mars 2011.

tilkynning um dagskrá.

[14:03]
Horfa

Forseti (Ásta R. Jóhannesdóttir):

Klukkan 15 í dag fer fram umræða utan dagskrár um stöðu atvinnumála. Málshefjandi er hv. þm. Ólöf Nordal. Forsætisráðherra Jóhanna Sigurðardóttir verður til andsvara. Umræðan fer fram skv. 2. mgr. 50. gr. þingskapa og stendur í hálfa klukkustund.

Forseti vill geta þess að gera má ráð fyrir atkvæðagreiðslum í dag, fyrst þegar að loknum liðnum um störf þingsins og aftur síðar í dag.