139. löggjafarþing — 92. fundur,  15. mars 2011.

framkvæmd þjóðaratkvæðagreiðslna.

557. mál
[17:23]
Horfa

Birgir Ármannsson (S):

Hæstv. forseti. Við fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í allsherjarnefnd skrifuðum undir nefndarálit og breytingartillögur með fyrirvara sem laut einkum að því ákvæði þar sem fjallað er um kæruleiðir vegna ágreiningsmála í kosningum samkvæmt þessum lögum. Við munum sitja hjá við þessa umræðu en eftir því sem mér skilst er gert ráð fyrir að allsherjarnefnd muni eiga einhvern fund um þetta mál þar sem þetta verði rætt sérstaklega, væntanlega hér á eftir.