139. löggjafarþing — 93. fundur,  15. mars 2011.

lokafjárlög 2009.

570. mál
[22:31]
Horfa

fjármálaráðherra (Steingrímur J. Sigfússon) (Vg):

Herra forseti. Ég mæli fyrir frumvarpi til lokafjárlaga fyrir árið 2009, á þskj. 961, að ég hygg, sem dreift hefur verið.

Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á fjárheimildum vegna frávika, markaðra skatttekna og annarra rekstrartekna stofnana frá áætlun fjárlaga og fjáraukalaga og gerðar tillögur um ráðstafanir á stöðu fjárheimilda í árslok, annaðhvort með niðurfellingu eða yfirfærslu til næsta árs. Þá er frumvarpið einnig til staðfestingar á niðurstöðum í ríkisreikningi ársins 2009.

Uppbygging frumvarpsins er með sama hætti og verið hefur undanfarin ár og tillögur um uppgjör og ráðstöfun á stöðu fjárheimilda í árslok byggjast á sömu viðmiðunarreglum og áður.

Í fylgiskjali 2 með frumvarpinu er yfirlit yfir talnagrundvöll frumvarpsins í heild. Yfirlitið sýnir uppruna allra fjárheimilda ársins 2009 fyrir ríkissjóð í heild og einstök viðfangsefni, þ.e. flutta stöðu fjárheimilda frá fyrra ári, fjárveitingar í fjárlögum og fjáraukalögum, millifærðar heimildir innan ársins og breytingar á fjárheimildum vegna frávika ríkistekna samkvæmt þessu frumvarpi til lokafjárlaga.

Í yfirlitinu koma einnig fram gjaldfærð útgjöld í ríkisreikningi og staða í árslok, þ.e. mismunur fjárheimilda og reikningsfærðra útgjalda. Heildarfjárheimildir á árinu 2009 námu rúmlega 590 milljörðum kr. Útgjöld samkvæmt reikningi urðu rúmir 578 milljarðar og fjárheimildastaða í árslok er því jákvæð um 12,2 milljarða kr. Í frumvarpinu er að vanda lagt til að staða fjárheimilda í árslok verði annaðhvort felld niður, eins og fram kemur í 2. gr., eða yfirfærð til næsta árs, eins og fram kemur í fylgiskjali nr. 1.

Vík ég þá nánar að lagagreinum frumvarpsins.

Í 1. gr. frumvarpsins, samanber skiptingu í sundurliðun 1, eru tillögur um breytingar á fjárheimildum vegna frávika markaðra skatttekna og annarra rekstrartekna stofnana frá áætlun fjárlaga og fjáraukalaga. Alls er lagt til að fjárheimildir verði auknar um 1.096.900.000 kr. samkvæmt uppgjöri á fjármögnun stofnana og verkefna með mörkuðum ríkistekjum. Nánar tiltekið er hér leitað eftir heimild Alþingis fyrir því að ráðstafa þessum tekjum ýmist í samræmi við hverjar þær urðu samkvæmt uppgjöri ríkisreiknings eða hver metin fjárþörf reyndist vera við skil ríkissjóðs á mörkuðum tekjum til viðkomandi aðila. Almennt gildir að útgjaldaheimildir hækka ef markaðar ríkistekjur til fjármögnunar á útgjöldum stofnana og verkefna hafa verið umfram fjárlög, en þær lækka hafi tekjurnar reynst minni. Það viðmið er þó ekki algilt því að ekki eru lagðar til breytingar á fjárheimildum ef ekki er beint samband á milli útgjaldaþarfar og fjármögnunar á þann hátt að breytingar í tekjum hafi bein áhrif á kostnað eða ef útgjaldaheimildir í fjárlögum eru ákvarðaðar út frá verkefnum án tillits til hugsanlegra breytinga í fjármögnun með mörkuðum ríkistekjum, eins og t.d. framlög til vegagerðar.

Í 2. gr. frumvarpsins, samanber skiptingu í sundurliðun 2, eru tillögur um niðurfellingu á fjárheimildastöðum í árslok 2009. Ráðstafanir á fjárheimildastöðum í árslok byggjast á viðmiðunarreglum þar sem einkum er litið til þess hvort útgjöld ráðist af öðrum lögum en fjárlögum og séu t.d. bundin af lögum eða samningum frekar en að vera á ábyrgð tiltekins stjórnsýsluaðila. Einnig er við það miðað að yfirfærsla milli ára á afgangsheimildum í almennum stofnanarekstri og öðrum reglubundnum rekstrarverkefnum fari almennt ekki umfram 10% af fjárlagaveltu viðkomandi verkefna nema sérstakar ástæður séu taldar til annars.

Tilgangur þess að takmarka yfirfærslu afgangsheimilda milli ára er að koma í veg fyrir að heimilt sé að efna til umtalsverðra útgjalda umfram fjárlög, enda auka útgjöld sem efnt er til á grundvelli geymdra fjárheimilda halla og skuldasöfnun ríkisins á sama hátt og útgjöld sem efnt er til á grundvelli heimilda í fjárlögum.

Við undirbúning frumvarpsins var farið yfir þau tilvik þar sem afgangsstöður fjárheimilda eru umfram framangreint viðmið. Við þá yfirferð kom í ljós að málsatvik voru í nokkrum tilvikum með þeim hætti að fagráðuneytin töldu nauðsynlegt að flytja meiri afgangsheimildir til ársins 2010. Dæmi um slíkt er ef framkvæmd verkefnis hefur frestast yfir áramót — ég hygg að það eigi við í nokkrum tilvikum hjá Vegagerðinni — eða ef stofnað hefur verið til skuldbindinga á grundvelli fenginna fjárheimilda, eða ef ráðuneyti hefur heimilað stofnun að ráðstafa geymdri fjárheimild í tiltekin verkefni og ljóst má vera að að öðrum kosti hefði rekstur á árinu 2010 stefnt í halla.

Að öðru leyti hefur, eins og jafnan áður við undirbúning lokafjárlaga, verið farið yfir alla fjárlagaliði og tillögur um flutning og niðurfellingar ákveðnar með hliðsjón af málsatvikum samkvæmt sömu viðmiðunarreglu og áður. Því má bæta við að almennt höfum við reynt að festa mjög kirfilega í sessi þær viðmiðunarreglur sem hér er stuðst við. Almenna reglan er þá sú að ekki er fært meira á ári hverju milli rekstrarliða af þessu tagi en sem nemur 4% af veltu og mest uppsafnað 10%.

Alls er lagt til að niður falli 6.422,7 millj. kr. af umframgjöldum á rekstrargrunni en á greiðslugrunni falla niður 2.444,4 millj. kr. af afgangsheimildum. Munurinn milli rekstrargrunns og greiðslugrunns í niðurfelldum fjárheimildastöðum skýrist að mestu af niðurfellingu umframgjalda á liðnum Afskriftir skattkrafna án samsvarandi greiðslu og niðurfellingu afgangsheimilda á liðnum Vaxtagjöld og lífeyrisskuldbindingar, þar sem niður falla gjaldaheimildir án samsvarandi greiðsluheimildar.

Í fylgiskjali 1 með frumvarpinu er yfirlit yfir fyrirhugaðar breytingar á fjárheimildum ársins 2010 vegna stöðu fjárheimilda í árslok 2009 sem yfirfærast til næsta árs. Gert er ráð fyrir að heimildir til rekstrar verði auknar um 9.971,8 millj. kr., tilfærsluheimildir auknar um 888,2 millj. kr., heimildir til viðhaldsverkefna auknar um 574,1 millj. kr. og stofnkostnaðarheimildir auknar um 7.169,5 millj. kr. Er þannig fyrirhugað að hrein aukning heimilda á árinu 2010 vegna þessara ráðstafana í heild verði 18.603,6 millj. kr. og svarar það til rúmlega 3% af heildarheimildum fjárlaga 2010.

Virðulegi forseti. Ég hef nú farið yfir helstu þætti frumvarpsins. Með því eru lagðar fyrir Alþingi niðurstöður úr rekstri ríkissjóðs gagnvart fjárheimildum á árinu 2009 og vísast í því sambandi til greinargerða í fjáraukalögum og ríkisreikningi um meginatriði í framvindu ríkisfjármála og helstu frávik í tekjum og gjöldum. Ég tel því ekki ástæðu til að fara nánar yfir einstök atriði í frumvarpinu og legg til að því verði vísað til 2. umr. og hv. fjárlaganefndar þingsins.