Fyrri ræða

139. löggjafarþing — 94. fundur,  16. mars 2011.

landlæknir og Lýðheilsustöð.

190. mál
[17:44]
Hlusta - Horfa

Frsm. minni hluta heilbrn. (Ragnheiður Ríkharðsdóttir) (S):

Virðulegur forseti. Við ræðum sameiningu landlæknisembættisins og Lýðheilsustöðvar við 2. umr. Í fyrri ræðum mínum tók ég fyrir vinnuferlið sem þegar er hafið við ráðningar í fyrirhugaðri stofnun.

Mig langar aðeins að koma inn á húsnæðismálin en það er tvennt sem ég óska að taka fram þar þó að hv. þm. Ásbjörn Óttarsson hafi gert góða grein fyrir þeim málum. Lýðheilsustöð er í einu húsnæði og landlæknisembættið í öðru. Þegar er búið að taka á leigu nýtt húsnæði fyrir fyrirhugaða sameiginlega stofnun. Mönnum er tíðrætt um að sá samningur um húsnæði sem landlæknisembættið er í sé til 17 ára. Ég tek undir að það hlýtur að vera umhugsunarefni að taka á leigu húsnæði til allt að 25 ára eins og gert var og hefur verið gert á fleiri stöðum. En landlæknisembættið er með samning til 17 ára héðan í frá. Óvíst er hvað verður um húsnæðið. Sá samningur kostar ríkið 24 milljónir á ári. Nýr samningur á nýjum stað kostar að lágmarki 12 milljónir á ári. Þetta finnst norrænni velferðarstjórn í lagi á sama tíma og verið er að segja upp fólki á heilbrigðisstofnunum vítt og breitt um landið. Hinni norrænu velferðarstjórn og meiri hluta heilbrigðisnefndar finnst í lagi að fara þannig með fjármuni vegna þess að fyrirhuguð stofnun muni væntanlega einhvern tíma þróast og blómstra. Ég vona að svo verði, en hefði ekki verið nær í því efnahagsástandi sem hér ríkir að horfa til þess að umræddar stofnanir yrðu áfram í því húsnæði sem þær eru í? Samlegðaráhrif um annan rekstur, faglegt innihald o.s.frv. hefði hæglega getað orðið þó að þessar tvær núverandi stofnanir sameinaðar í eina ættu heima á fleiri en einum stað og ber þar að nefna Landspítala – háskólasjúkrahús sem er að ég tel á 18 stöðum vítt og breitt um höfuðborgarsvæðið.

Hinn vinkillinn sem vert er að taka er að um er að ræða nýja stjórnsýslustofnun sem skiptir engu máli hvar er staðsett á landinu. En hvar verður hún að vera? Hún verður að vera í höfuðborginni. Það vill svo til, herra forseti, að landlæknisembættið er á Seltjarnarnesi í Suðvesturkjördæmi. Nú á að flytja þá ríkisstofnun þaðan og til höfuðborgarinnar. Það er stutt síðan önnur stjórnsýslustofnun, eftirlitsstofnun, Fjármálaeftirlitið, auglýsti eftir húsnæði. Hún gat heldur ekki verið neins staðar nema innan höfuðborgarinnar sjálfrar. Er ekki kominn tími til horfa til landsins í heild þegar við leitum að húsnæði? Gæti stjórnsýslustofnun eins og Landlæknir – lýðheilsa t.d. verið staðsett á Ísafirði, Egilsstöðum eða hugsanlega Akureyri? Af hverju þarf slík stofnun að vera í Reykjavík, svo að þeirri spurningu sé velt upp?

Í ljósi þess, virðulegi forseti, sem hv. þm. Þuríður Backman sagði áðan, að til þess að hægt væri að drífa þetta mál í gegn mundi hún sjá til þess að það yrði fundur í heilbrigðisnefnd á morgun, á fimmtudegi, þegar þingfundur byrjar hálfellefu og stendur til þrjú, hef ég ráðstafað tíma mínum frá átta til hálfellefu og get ekki setið fund heilbrigðisnefndar á þeim tíma. Sem framsögumaður nefndarálits minni hlutans (Forseti hringir.) óska ég eftir því að næsti fundur heilbrigðisnefndar verði á eðlilegum tíma klukkan hálfníu á miðvikudaginn.

Næsta ræða