139. löggjafarþing — 99. fundur,  24. mars 2011.

skipun stjórnlagaráðs.

549. mál
[11:47]
Horfa

Vigdís Hauksdóttir (F):

Virðulegi forseti. Lengra komumst við víst ekki í vitleysunni með þetta mál því að hér er lagt til að farið verði af stað með ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðslu um ráðgefandi niðurstöðu frá ráðgefandi stjórnlagaráði sem kosið var af minni hluta Alþingis með 31 atkvæði áðan. Ég segi nei.