139. löggjafarþing — 102. fundur,  29. mars 2011.

innstæðutryggingar og tryggingakerfi fyrir fjárfesta.

237. mál
[18:35]
Horfa

Frsm. 2. minni hluta viðskn. (Margrét Tryggvadóttir) (Hr) (andsvar):

Frú forseti. Ég kom aðallega hingað upp til að þakka þingmanninum fyrir hreinskilnina en ég gat ekki betur heyrt á máli hans en hann hefði engu meiri trú á þessu innstæðutryggingakerfi en ég. Ég þakka bara kærlega fyrir það.