139. löggjafarþing — 103. fundur,  30. mars 2011.

störf þingsins.

[14:17]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (F):

Frú forseti. Fyrir rúmri viku sögðu tveir þingmenn sig úr þingflokki Vinstri grænna og þá fengum við að heyra að með því hefði ríkisstjórnin styrkst. Í framhaldi af því fór hæstv. forsætisráðherra fram á heimild til að leggja niður hæstv. landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra, væntanlega til að styrkja ríkisstjórnina enn meira. Nú virðist það mál hafa verið stöðvað í þingflokki Vinstri grænna í bili enda ólíklegt að hæstv. forsætisráðherra hafi meiri hluta fyrir því máli á þinginu, sem betur fer.

Fyrir nokkrum dögum kom líka í ljós að hæstv. forsætis- og jafnréttisráðherra hefði brotið jafnréttislög. Við höfðum ekki haft svigrúm til að ræða þetta við hæstv. ráðherra og spyrja hvort hæstv. ráðherra ætlaði ekki örugglega að segja af sér eins og hún hefði örugglega krafist af öllum öðrum í sömu stöðu vegna þess að ekki hafði hæstv. forsætisráðherra fyrr verið staðin að því að brjóta jafnréttislög en hæstv. fjármálaráðherra var kominn í stríð. [Hlátur í þingsal.]

Frú forseti. Kjörorð þessarar ríkisstjórnar hlýtur að vera: Svo skal böl bæta að bíða annað meira, [Hlátur í þingsal.] vegna þess að maður hefur ekki svigrúm til að taka á einu vandræðamáli, þá er annað stærra komið upp. Í hverju einasta tilviki virðast menn ekki ætla að taka ábyrgð á neinu, ekki kannast við neitt. Hæstv. fjármálaráðherra segist ekki bera neina ábyrgð á ákvörðunum eigin ríkisstjórnar er varðar heimild til NATO til að halda áfram hernaði í Líbíu. Hið sama á við um hæstv. forsætisráðherra í jafnréttismálum. Svörin eru alltaf á þá leið: Mundi einhver trúa þessu upp á mig, (Forseti hringir.) að ég mundi gera svona? Sama fólk og fordæmir alla aðra ætlar ekki að taka ábyrgð á neinu sjálft. (Gripið fram í.)