139. löggjafarþing — 103. fundur,  30. mars 2011.

ráðstafanir til að lækka eldsneytisverð.

642. mál
[17:03]
Horfa

Flm. (Tryggvi Þór Herbertsson) (S):

Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir frumvarpi til breytinga á skattlagningu bensíns og dísilolíu sem leiða mun til lækkunar á eldsneytisverði.

Frelsisaldan sem nú fer um Norður-Afríku og Arabíuskagann hefur leitt til mikillar óvissu um þróun eldsneytisverðs í heiminum. Þá leiðir jarðskjálftinn mikli í Japan og kjarnorkuslysið sem varð í kjölfarið í Fukushima-kjarnorkuverinu til vantrúar á kjarnorku sem aftur eykur eftirspurn eftir öðrum orkugjöfum, að minnsta kosti tímabundið. Þessi óvissa kemur fram í hækkun olíuverðs á heimsmarkaði og þar með innflutningsverði hér á landi. Nú er svo komið að eldsneytisverð ógnar hagvaxtarbatanum í heiminum. Ráðstöfunartekjur fólks að teknu tilliti til eldsneytisverðs skerðast og einkaneysla minnkar.

Hlutur eldsneytis er um 7%–8% í neyslu heimilanna. Mikil verðhækkun eldsneytis skerðir því möguleikana á neyslu annarra vörutegunda. Fólk nær að einhverju leyti að bregðast við með því að draga úr eldsneytisnotkun, sérstaklega til lengri tíma litið. Þannig hefur eldsneytissala dregist saman um 7% frá sama tíma í fyrra og umferð hefur minnkað um rúm 6% frá áramótum samkvæmt mælingum Vegagerðarinnar.

Í gær var birt könnun MMR um bifreiðanotkun og eldsneytisverð. Samkvæmt niðurstöðum könnunarinnar hafa 70% íbúa minnkað bifreiðanotkun sína í kjölfar eldsneytishækkana. Til lengri tíma litið skipta heimilin yfir í sparneytnari bifreiðar og ódýrari orkugjafa, svo sem metan, rafmagn og vetni, auk þess sem almenningssamgöngur verða fýsilegri kostur.

Samkvæmt útreikningum Félags íslenskra bifreiðaeigenda í febrúar 2010 nam eldsneytisreikningur heimilanna vegna fjölskyldubílsins um 275 þús. kr. á síðasta ári. Þar af voru skattar 136 þús. kr. Sambærilegir útreikningar fyrir árið 2011 eru 453 þús. kr. og þar af eru skattar 225 þús. kr. Ráðstöfunartekjur meðalheimilis, og þar með neysla, minnka því um 178 þús. kr. vegna hærra eldsneytisverðs. Auk þessa hækkar vöruverð vegna aukins flutningskostnaðar. Það er því brýnt að bregðast með einhverju móti við þessari þróun.

Ljóst er að ef eldsneytisverðshækkanir eru komnar til að vera er þjóðum heims vandi á höndum. Flutningsmenn eru hins vegar þeirrar skoðunar að svo sé ekki og að framvirkt verð, sérstaklega á bensíni, bendi til annars. Fyrrnefnd óvissa hefur þrýst verði upp á við tímabundið og þegar hún minnkar á ný mun verð lækka aftur. Slík sveifla getur hins vegar skaðað atvinnulífið og valdið varanlegum skemmdum sem sitja eftir þegar verð lækkar á ný. Ímyndum okkur í dæmaskyni fyrirtæki á Akureyri sem flytur vörur sínar á markað í Reykjavík. Flutningskostnaður hækkar vegna hærra eldsneytisverðs, eftirspurn dregst saman eftir vörum fyrirtækisins og það fer á hausinn. Nú lækkar eldsneytisverð en fyrirtækið er orðið gjaldþrota, skemmdin er orðin varanleg. Því er mikilvægt að hækkunum sé mætt tímabundið með aðgerðum af hálfu hins opinbera og til lengri tíma með því að minnka notkun jarðefnaeldsneytis. Besta leiðin til að mæta skammtímasveiflu er að lækka skatta tímabundið og það er því lagt til hér. Lagt er til að skattalækkanir nái til tímabilsins 1. apríl 2011 til 31. desember 2011. Endurskoða þarf ákvörðunina í ljósi reynslunnar og nýrra upplýsinga um þróun eldsneytisverðs næsta haust.

Bensínverð er nú um 231 kr. á lítrann, þar af tekur ríkið til sín um 49% í skatta. Skattarnir eru samsettir úr krónutölusköttum sem eru almennt bensíngjald, sérstakt bensíngjald og kolefnisgjald, sem er nýr skattur sem lagður var á í fyrsta skipti um áramótin. Ofan á þessa skatta og kostnaðarverð og álagningu leggst síðan virðisaukaskattur sem nemur 46,2 kr. Samtals nemur hlutur ríkisins því 112,41 kr. Á innkaupsverð dísilolíu leggst annars vegar olíugjald og hins vegar kolefnisgjald og ofan á það virðisaukaskattur. Í frumvarpinu er lagt til að krónutöluskattar á eldsneyti verði lækkaðir tímabundið, um 19,86 kr. á lítra af bensíni og 19,88 kr. á lítra af dísilolíu.

Í fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2011 var gert ráð fyrir að meðalverð á bensíni yrði 200 kr. á lítra á þessu ári og á dísilolíu 197 kr. á árinu. Það er því ljóst að verð hefur hækkað gríðarlega mikið frá þeim forsendum. Áætlað er að sala á bensíni verði um 149 milljónir lítra á tímabilinu 1. apríl til 31. desember og að sú sala skili ríkissjóði tæpum 16 milljörðum kr. í skatttekjum. Spár gera hins vegar ráð fyrir að bensínverð verði um 234 kr. á lítra sem gefur um 134,5 milljónir lítra í heildarsölu og um 15,4 milljarða kr. heildartekjur fyrir ríkissjóð. Ástæðuna fyrir minni tekjum þrátt fyrir hærra verð má rekja til eftirspurnaráhrifa. Þegar verð á eldsneyti hækkar minnkar fólk akstur og neyslan dregst saman. Hægt er að gera ráð fyrir því að lögmál jarðfræðinnar gildi á öllum tímum. Við vitum til að mynda að ef orka losnar á einum stað í jarðskorpunni kemur hún alltaf fram á öðrum stað. Við vitum líka að annað lögmál varmafræðinnar heldur alltaf. Efnahagsstarfsemin verkar ekki svona. Fólk breytir hegðun sinni ef verð breytist og sú breyting er ólínuleg. Áhrifin af því að hækka verð úr 199 kr. í 200 eru önnur en að hækka þau úr 99 kr. í 100. Af þessum ástæðum er gott að horfa fremur til lögmála hagfræðinnar en jarðfræðinnar þegar fjallað er um efnahagsmál.

Hér er gert ráð fyrir að verðteygni eftirspurnar sé -0,64, þ.e. að 1% hækkun verðs leiði til 0,64% minnkunar magns, sem er nokkru hærri teygni en fjármálaráðuneytið gerir ráð fyrir, en á þeim bænum er oftast miðað við teygnistuðulinn -0,36. Ástæðan fyrir þessu er sú að ráðstöfunartekjur íslenskra heimila eru sem stendur í algjöru lágmarki vegna tekjulækkunar og skattahækkana og erfitt að sjá fyrir sér að þau hafi upp á mikið að hlaupa hvað varðar aukna eyðslu í eldsneytiskaup eins og samdráttur í einkaneyslu undanfarin tvö ár sýnir. Áhrifin af verðhækkun eru nú meiri en áhrifin eru í góðu ári og því rökstyðjum við notkun á þessum teygnistuðli með því.

Í fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2011 var gert ráð fyrir að meðalverð á dísilolíu yrði um 197 kr. á lítra á árinu, eins og áður sagði, og að heildarsala yrði um 92,8 milljónir lítra á tímabilinu 1. apríl til 31. desember og að sú sala skilaði ríkissjóði tæpum 9,2 milljörðum kr. í skatttekjum á tímabilinu. Spár á olíumarkaði gera hins vegar ráð fyrir að verð á dísilolíu verði um 239 kr., sem leiðir til þess, miðað við teygnistuðul upp á -0,64, að salan verði um 81,9 milljónir lítra, ekki 92,8 eins og spár fjármálaráðuneytisins gera ráð fyrir, og heildartekjur ríkissjóðs verði 8,8 milljarðar kr. í staðinn fyrir 9,2.

Frumvarpið gerir ráð fyrir lækkun á almennu bensíngjaldi og olíugjaldi um tæpar 20 kr. á lítra, eins og áður segir, sem leiðir til þess að verð á bensíni og dísilolíu lækkar um 28 kr. vegna virðisaukaskatts og álagningar. Þetta veldur því að bensínverð ætti að lækka úr ætluðu verði, sem er 234 kr., í 206 kr. á lítra, og verð á dísilolíu ætti að lækka úr ætluðu verði, 239 kr., í 211 kr. á lítra. Þessi lækkun leiðir til þess að sala á bensíni eykst líklega úr 134,5 milljónum lítra í 145,8 milljónir lítra en tekjurnar lækka úr 15,4 milljörðum kr. í 13,0 milljarða kr. vegna þessarar lækkunar krónutöluskatta.

Sala á dísilolíu eykst vegna framangreindrar lækkunar á olíugjaldi og miðað við sama verðteygnistuðul eykst hún úr 81,9 milljónum lítra í 88,7 milljónir lítra. Beinar tekjur ríkissjóðs af sölu dísilolíu lækka því úr 8,8 milljörðum kr. í 7,3 milljarða kr. Hér er gert ráð fyrir að olíufélögin hækki ekki álagningu sína og brýnt er að þeim verði veitt aðhald með verðkönnunum líkt og Félag íslenskra bifreiðaeigenda hefur gert.

Heildaráhrif á tekjur ríkissjóðs vegna lækkunar bensín- og olíugjalda verða 3,9 milljarðar kr., þar af 780 millj. kr. vegna minni tekna af virðisaukaskatti. Ekki er óvarlegt að áætla að sparnaði heimila vegna lægri eldsneytisreiknings verði að mestu eða öllu leyti beint til annarrar einkaneyslu og því missi ríkissjóður ekki virðisaukaskattstekjur. Hér gert ráð fyrir að nettótekjutap ríkissjóðs, að teknu tilliti til virðisaukaskatts, verði því um 3,2 milljarðar kr. á tímabilinu. Ríkissjóður mun þó ekki verða fyrir öllu þessu tekjutapi vegna annarra áhrifa.

Lækkun skatta á eldsneyti leiðir beint til hækkunar ráðstöfunartekna, einkaneyslu og hagvaxtar. Útreikningar fjármálaráðuneytisins sýna að ráðstöfunin lækkar vísitölu neysluverðs um 0,8%–0,9%. Ef miðað er við að verðbólgumarkmið Seðlabankans haldi, sem er 2,5%, jafngildir skattalækkunin eða eldsneytislækkunin tæplega 3,5% nafnlaunahækkun fyrir launþega á Íslandi og munar um minna.

Lækkun skatta á eldsneyti leiðir beint til lækkunar vísitölu neysluverðs sem aftur lækkar höfuðstól verðtryggðra lána heimila og fyrirtækja og afborganir af þeim. Verðtryggðar skuldir heimilanna eru nú taldar nema um 2.000 milljörðum kr. Lækkun neysluverðsvísitölu um 0,8%–0,9% vegna ráðstöfunarinnar er talin geta lækkað skuldir heimilanna á bilinu 16–18 milljarða kr. tímabundið.

Áhrif aðgerðarinnar, bein og óbein, væru veruleg og mundu leiða til jákvæðra áhrifa á hagvöxt. Fram undan er mesti álagstími ferðaiðnaðarins og lækkun eldsneytis mundi virka eins og vítamínsprauta á greinina, hafa jákvæð áhrif á landsbyggðina sem og landið allt og styrkja innviði greinarinnar. Áhrifin mundu einnig leiða til lækkunar á flutningskostnaði og þar af leiðandi lækkunar vöruverðs. Sennilega verður nettótekjutap ríkissjóðs af aðgerðinni, að teknu tilliti til stöðu ríkissjóðs, vel innan ásættanlegra marka.

Virðulegi forseti. Ég hef nú lokið máli mínu og vil vísa málinu til hv. efnahags- og skattanefndar til umfjöllunar.