139. löggjafarþing — 111. fundur,  13. apr. 2011.

vantraust á ríkisstjórnina, þingrof og nýjar kosningar.

751. mál
[20:27]
Horfa

Guðfríður Lilja Grétarsdóttir (Vg):

Virðulegi forseti. Ég ætla ekki að líta til fortíðar, ég ætla að horfa fram á veginn. Ég horfi til Þjórsárvera og Þjórsár og náttúru Íslands og ábyrgrar stefnu í umhverfismálum til framtíðar. Ég horfi til auðlinda í almannaeigu og í þágu almannahags. (BirgJ: Gleymum ekki Magma.) Ég horfi til möguleikans, draumsins, um að loksins verði hrópað hárri raust og framfylgt í verki: Við stöndum með fólki, ekki fjármagni. Og ég horfi til vonarinnar um það sem kjósendur veittu þessari ríkisstjórn umboð til að gera. Það er hægt að kalla aftur á anda búsáhaldabyltingarinnar í hverrar skjóli ríkisstjórnin komst til valda þar sem fólk krafðist róttækra breytinga og bar von í brjósti. Það er hægt að laga stórkostlega gallað hjónaband, það er hægt að leiðrétta mistök. Það er hægt að græða sár og það er líka hægt að endurvinna traust. Það er hægt að breyta vonbrigðum í hugdirfsku og það er hægt að breyta doða og reiði í djörfung og bjartsýni.

En eitt veit ég, frú forseti, vonin um að Þjórsárver og Þjórsá lifi um komandi ár mun aldrei rætast undir forustu stóriðjuaflanna. Vonin um að auðlindum þjóðarinnar verði forðað frá braskinu mun aldrei rætast undir forustu einkavinavæðingarinnar. Við skulum líta fram á veginn, öll sem eitt, og gera betur, gera betur, gera betur.

Frú forseti. Ég segi nei við vantrausti og ég segi já við trausti.