vantraust á ríkisstjórnina, þingrof og nýjar kosningar.
Virðulegi forseti. Ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur hefur ekki góða áru. Hún minnir um margt á ævisjálfheldu eða marhnút í grunnum skerjapolli. Ríkisstjórnin er verkkvíðin og hrædd og það skilar engu. Hún hvetur ekki, heldur letur og letur og letur. Ríkisstjórnin býður aðeins upp á depurð, vonleysi og kjarkleysi, skilur heimili og atvinnusköpun eftir á víðavangi. Það gengur ekki og hún gengur alls ekki til verka.
Við ætlum að fara að gera það, við ætlum að fara að gera það, við ætlum að fara að gera það, klifar hæstv. forsætisráðherra sífellt á — en ekkert skeður. Tími ríkisstjórnarinnar hefur færst upp í ekki neitt. Íslendingar eiga betra skilið.
Ég segi já.