Fyrri ræða

139. löggjafarþing — 111. fundur,  13. apr. 2011.

vantraust á ríkisstjórnina, þingrof og nýjar kosningar.

751. mál
[21:57]
Hlusta - Horfa

Pétur H. Blöndal (S):

Frú forseti. Ríkisstjórn sem hangir saman á því lími að henni er illa við Sjálfstæðisflokkinn og óttast hann og hefur engar hugsjónir sjálf gengur ekki upp. Það er skýringin á því að svo mikil óreiða er í þessu landi. (Gripið fram í: Það er bara þjóðin sem … Sjálfstæðisflokkinn.)

Um síðustu helgi fóru fram kosningar og þá kom í ljós að þjóðin hafnaði því sem meiri hluti Alþingis hafði samþykkt með 44 atkvæðum [Kliður í þingsal.] og þess vegna er nauðsyn að þingmenn fái endurnýjað umboð frá kjósendum. Það er mjög nauðsynlegt að það gerist. Þar að auki eykur það ekki óreiðuna því að hún hefur verið viðvarandi allan valdatíma þessarar ríkisstjórnar sem hangir saman á þessu lími sem er Sjálfstæðisflokkurinn.