139. löggjafarþing — 113. fundur,  15. apr. 2011.

fundarstjórn.

[11:38]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S):

Virðulegi forseti. Ég vil taka undir orð hv. þm. Ragnheiðar Ríkharðsdóttur um fundarstjórn forseta. Þrátt fyrir að hv. þm. Eygló Harðardóttir hafi komið hér upp undir þessum lið og staðfest Íslandsmet sitt í oflæti en undanskilið einn hv. þingmann dómhörku sinni, breytir það engu um þá gagnrýni sem hv. þm. Ragnheiður Ríkharðsdóttir hefur varðandi málið. Ég tek undir þá gagnrýni.