139. löggjafarþing — 116. fundur,  3. maí 2011.

heimsókn forseta Slóveníu.

[16:23]
Horfa

Forseti (Ragnheiður Ríkharðsdóttir):

Ég vil vekja athygli hv. þingmanna á því að forseti Slóveníu, dr. Danilo Türk, er staddur á þingpöllum ásamt fylgdarliði. Forseti Slóveníu er hér í heimsókn í Alþingishúsinu í tengslum við opinbera heimsókn hans hingað til lands í boði forseta Íslands.

Ég vil fyrir hönd Alþingis bjóða forseta Slóveníu, dr. Danilo Türk, velkominn í Alþingishúsið og ég vænti þess að heimsókn hans til Íslands verði til þess að styrkja enn frekar þau góðu tengsl sem eru á milli landanna. Alþingi vottar forseta Slóveníu og slóvensku þjóðinni vináttu og virðingu. Ég bið hv. alþingismenn að rísa úr sætum og taka undir orð mín með þeim hætti. — [Þingmenn risu úr sætum.]