139. löggjafarþing — 117. fundur,  4. maí 2011.

tilkynning um dagskrá.

[14:01]
Horfa

Forseti (Ásta R. Jóhannesdóttir):

Forseti vill geta þess að atkvæðagreiðslur verða að loknum umræðum um störf þingsins.

Um klukkan hálffjögur í dag fer fram umræða utan dagskrár um rekstrargrundvöll gagnavera á Íslandi. Málshefjandi er hv. þm. Vigdís Hauksdóttir. Hæstv. fjármálaráðherra Steingrímur J. Sigfússon verður til andsvara. Umræðan fer fram skv. 2. mgr. 50. gr. þingskapa og stendur í hálfa klukkustund.