139. löggjafarþing — 119. fundur,  5. maí 2011.

ökutækjatryggingar.

711. mál
[21:08]
Horfa

Gunnar Bragi Sveinsson (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil taka fram að ég er algerlega sammála hæstv. ráðherra um það að taka þarf mjög fast á óvátryggðum ökutækjum og öllu sem að því snýr. Það eina sem ég vil koma á framfæri er að ég hef efasemdir um að um Umferðarstofa eigi að hafa þetta hlutverk — ég segi ekkert meira um það að þessu sinni en ég hef ákveðnar efasemdir um það.