139. löggjafarþing — 121. fundur,  11. maí 2011.

tilkynning um dagskrá.

[14:01]
Horfa

Forseti (Ásta R. Jóhannesdóttir):

Klukkan 14.30 fer fram umræða utan dagskrár um íslenska matvælaframleiðslu og matvælaverð. Málshefjandi er hv. þm. Sigurður Ingi Jóhannsson. Hæstv. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra Jón Bjarnason verður til andsvara. Umræðan fer fram skv. 2. mgr. 50. gr. þingskapa og stendur í hálfa klukkustund.