139. löggjafarþing — 129. fundur,  18. maí 2011.

almannatryggingar.

797. mál
[15:46]
Horfa

Flm. (Guðfríður Lilja Grétarsdóttir) (Vg) (andsvar):

Virðulegi forseti. Án þess að ég ætli mér að fullyrða um þetta mál tel ég miklar líkur á því að við fáum greinargóð svör á morgun og útreikninga og það sem við höfum rætt um í nefndinni. Við getum beðið í einhverja klukkutíma í viðbót til morguns til að sjá það sem um ræðir og ræða það en ég tel líkur á því að við fáum greinargóð svör í þessum efnum.