139. löggjafarþing — 132. fundur,  20. maí 2011.

almannatryggingar.

797. mál
[14:16]
Horfa

Pétur H. Blöndal (S):

Herra forseti. Ég er mjög hlynntur þessu máli og tel brýnt að bótaþegar fái sambærilegar kjarabætur og almennir launþegar. Ég hef hins vegar dálítinn fyrirvara á því að þetta er ekki í fjárlögum og treysti á að hv. fjárlaganefnd komi með fjáraukalög fyrir 1. júní svo að hægt sé að greiða þetta út með lögmætum hætti. Í trausti þess, og vegna þess hve málið er brýnt og málið gott, segi ég já.