stjórn fiskveiða.
Virðulegi forseti. Ég þakka þingmanninum kærlega fyrir spurningarnar. Það þarf enginn að velkjast í vafa um að að minnsta kosti Samfylkingin vill leggja niður Byggðastofnun og hefur nú þegar verið gerð fyrsta aðförin að stofnuninni, t.d. með þeim breytingum að fækka í stjórn og taka þarna til. Auðvitað þarf að skoða alla stjórnsýsluna en það er alveg augljóst að aðför er á stefnuskránni.
Varðandi þessa úthlutun á byggðakvóta er það rétt að það er búið að taka ákvæði um Byggðastofnun út. Eins og þingmaðurinn benti á er það Byggðastofnun sem fer með nánast öll málefni úti á landi varðandi lán og annað og hefur þessa yfirsýn. Ég minni á að það þurfti að afskrifa 2 milljarða, að mig minnir, við ákvörðun sjávarútvegsráðherra í fyrrasumar við það að gefa rækjukvóta frjálsan, sem dæmi, þannig að þarna eru rosalegir peningahagsmunir í húfi. Þess vegna verður að vera eitthvert eitt apparat sem heldur utan um þetta en ekki bara starfandi sveitarstjórnir eða þess heldur starfandi sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra sem er fært mjög mikið vald í þessu frumvarpi.
Varðandi stefnu Evrópusambandsins er það hárrétt, það er verið að tala um að Evrópusambandið sé að laga sig að íslenskum reglum, fiskveiðistjórnarkerfið okkar er svo gott að sambandið ætlar að fara í þá átt. En þetta er nánast spegilmynd og þá er ég að vísa til ársins 2014, það stendur til að breyta Evrópusambandinu mjög þá og það á að taka upp þessa íslensku leið. Það er hárrétt. Auðvitað ætti að standa í frumvarpinu að þetta væri byggt upp í samræmi við stefnu Evrópusambandsins og raunverulega byggt upp í þeirri samvinnu að hér sé um aðildarumsókn að ræða. Það fer ekkert á milli mála.
Ég skora á þingmenn Vinstri grænna að koma hér og tala fyrir málefnum þjóðarinnar. Það eru þeir sem bera ábyrgð á þessari aðildarumsókn með Samfylkingunni. Nú verðum við að standa saman (Forseti hringir.) og fara að ná þessu út af borðinu því að hvert einasta frumvarp sem kemur inn í þingið gengur út á það að laga okkur að Evrópusambandinu.