139. löggjafarþing — 140. fundur,  3. júní 2011.

stjórn fiskveiða.

827. mál
[18:43]
Horfa

Lilja Rafney Magnúsdóttir (Vg) (andsvar):

Virðulegi forseti. Hv. þingmaður kallar eftir einföldu svari og ég get alveg einfaldað það svar: Þetta er pólitísk niðurstaða miðað við þau gögn sem liggja fyrir í málinu miðað við vinnu starfshópsins og vinnu í ráðuneytinu. Þetta er pólitísk niðurstaða. Svarið getur ekki verið einfaldara og ég vona að það dugi hv. þingmanni.