139. löggjafarþing — 146. fundur,  9. júní 2011.

varamaður tekur þingsæti.

[10:30]
Horfa

Forseti (Ásta R. Jóhannesdóttir):

Borist hefur bréf frá Birki Jóni Jónssyni, hv. 2. þm. Norðaust., um að hann geti ekki sótt þingfundi á næstunni af persónulegum ástæðum. Í dag tekur sæti á Alþingi varamaður hans, Huld Aðalbjarnardóttir skólastjóri. Huld hefur áður tekið sæti á Alþingi og er hún boðin velkomin til starfa á ný.