139. löggjafarþing — 147. fundur,  9. júní 2011.

staðfesting samninga um veiðar úr norsk-íslenska síldarstofninum á árinu 2011.

680. mál
[17:24]
Horfa

Frsm. utanrmn. (Árni Þór Sigurðsson) (Vg):

Frú forseti. Ég mæli fyrir nefndaráliti um tillögu til þingsályktunar um staðfestingu samninga um veiðar úr norsk-íslenska síldarstofninum á árinu 2011.

Með þessari tillögu er leitað heimildar Alþingis til ríkisstjórnarinnar um að staðfesta þrjá samninga um veiðar úr norsk-íslenska síldarstofninum á árinu 2011 en þeir voru gerðir í London 21. október 2010. Hér er um að ræða sameiginlega bókun milli Evrópusambandsins, Færeyja, Íslands, Noregs og Rússneska sambandsríkisins um niðurstöður fiskveiðiviðræðna um stjórn veiða úr norsk-íslenska síldarstofninum í Norðaustur-Atlantshafi á árinu 2011, samkomulag milli Íslands og Noregs um veiðiheimildir innan efnahagslögsögu Noregs norðan 62°N, fiskveiðilögsögu Jan Mayen og efnahagslögsögu Íslands á árinu 2011 og í þriðja lagi samkomulag milli Íslands og Rússneska sambandsríkisins um veiðiheimildir innan efnahagslögsögu Íslands á árinu 2011.

Með þessum árlegu fimmhliða samningum um norsk-íslenska síldarstofninn skiptast veiðiheimildir í sömu hlutföllum og gilt hafa frá árinu 2007 og eru engar breytingar þar á. Hins vegar vegna bágs ástands stofnsins er heildarafli minnkaður á milli ára og þar með veiðiheimildir allra samningsaðila hlutfallslega.

Utanríkismálanefnd leggur til að tillagan verði samþykkt óbreytt.

Undir nefndarálitið rita Árni Þór Sigurðsson, Birgitta Jónsdóttir, Bjarni Benediktsson, Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, Helgi Hjörvar, Ólöf Nordal, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson og Valgerður Bjarnadóttir.

Björgvin G. Sigurðsson var fjarverandi við afgreiðslu málsins.