139. löggjafarþing — 148. fundur,  10. júní 2011.

embætti sérstaks saksóknara.

754. mál
[15:39]
Horfa

Frsm. allshn. (Róbert Marshall) (Sf):

Frú forseti. Ég mæli fyrir nefndaráliti um frumvarp til laga um breytingu á lögum um embætti sérstaks saksóknara. Með því er lagt til að verkefni efnahagsbrotadeildar ríkislögreglustjóra verði færð til embættis sérstaks saksóknara. Hjá báðum þeim stofnunum er til staðar sérþekking og sérhæfing á sviði rannsókna efnahagsbrota og er með sameiningu þeirra stefnt að aukinni skilvirkni og hagkvæmni. Í gildandi lögum um embætti sérstaks saksóknara er gert ráð fyrir að það starfi tímabundið og að hægt verði að leggja það niður eftir 1. janúar 2011 að fengnu áliti ríkissaksóknara og framlagningu frumvarps þess efnis fyrir Alþingi. Með frumvarpi þessu er lagt til að þau tímamörk verði færð aftur til 1. janúar 2013. Samkvæmt áætlunum embættis sérstaks saksóknara er gert ráð fyrir að úrvinnslu úr þeim verkefnum sem embættinu voru falin í kjölfar efnahagshrunsins ljúki á árinu 2015.

Í frumvarpinu er einnig lagt til að skipuð verði nefnd sérfróðra manna til að endurskoða skipulag og tilhögun rannsókna og saksóknar í efnahagsbrotamálum og gera tillögur að heildarskipulagi slíkra rannsókna innan einnar stofnunar til framtíðar.

Nefndin fjallaði í störfum sínum nokkuð um rökin fyrir því að flytja verkefni efnahagsbrotadeildar ríkislögreglustjóra til embættis sérstaks saksóknara. Í athugasemdum við frumvarpið kemur fram að rannsókn efnahagsbrota krefst sérstakrar þekkingar á viðskiptum og bókhaldi og tengist oft víðtækri brotastarfsemi á þessu sviði. Kom fram að innan embættis sérstaks saksóknara og efnahagsbrotadeildar ríkislögreglustjóra hefur byggst upp mikil sérþekking og sérhæfing á þessu sviði og því séu mikil samlegðaráhrif fólgin í því að leggja saman starfskrafta þessara tveggja rannsóknareininga í eina sterka rannsóknareiningu í stað þess að reka fleiri en eina rannsóknareiningu á þessu sviði.

Á fundum sínum fjallaði nefndin einnig um stöðu starfsmanna samkvæmt frumvarpinu en í því er gert ráð fyrir að öllum embættismönnum og öðrum starfsmönnum efnahagsbrotadeildar ríkislögreglustjóra verði boðið starf hjá embætti sérstaks saksóknara og að þeim sem ekki þiggja að færast á milli embætta skuli boðið annað starf innan lögreglunnar. Fyrir nefndinni komu fram athugasemdir um að þær breytingar sem frumvarpið felur í sér á réttarstöðu starfsmanna í mjög sérhæfðum störfum séu grundvallarbreytingar á ráðningarkjörum þeirra, þ.e. ef þeir þiggja tímabundið starf hjá embætti sérstaks saksóknara í stað ótímabundins starfs hjá efnahagsbrotadeild.

Það er lagt hér til að heimilt sé að skipa lögreglumenn sem hafa lokið prófi frá Lögregluskóla ríkisins til starfa við embættið, en ákvæði lögreglulaga og laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, um fimm ára skipunartíma og biðlaunarétt, taki ekki til þessara starfsmanna og að skipun þeirra falli niður þegar embætti sérstaks saksóknara verður lagt niður eða sameinað annarri ríkisstofnun.

Nefndin tekur einnig fram að réttarstaða embættismanna er samkvæmt lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins önnur en starfsmanna sem ekki eru embættismenn. Nefndin telur engu að síður rétt að mæta þeim sjónarmiðum sem fram komu á fundum nefndarinnar og í samtölum við lögreglumenn, fulltrúa þeirra og efnahagsbrotadeildar, og leggur til breytingar á ákvæði til bráðabirgða um að bjóða skuli öllum starfsmönnum efnahagsbrotadeildarinnar starf hjá embætti sérstaks saksóknara. Bæði skal bjóða embættismönnum starf og öðrum starfsmönnum. Öðrum starfsmönnum en lögreglumönnum verði boðið ótímabundið starf. Verði embættið lagt niður eiga þeir rétt á þriggja mánaða launum.

Á fundum nefndarinnar var einnig fjallað um hugmyndir um framtíðarskipan þessara mála. Samkvæmt ákvæði til bráðabirgða í frumvarpinu er lagt til að innanríkisráðherra skipi nefnd sérfróðra manna að höfðu samráði við hlutaðeigandi ráðuneyti til þess að endurskoða skipulag og tilhögun rannsókna og saksóknar í efnahagsbrotamálum og gera tillögur að heildarskipulagi slíkrar rannsókna innan einnar stofnunar til að gera þær skilvirkari og markvissari og tryggja sem besta nýtingu fjármuna.

Nefndin fjallaði um ákvæði frumvarpsins um gildistöku en fyrir nefndinni hafa komið fram ábendingar, m.a. frá sérstökum saksóknara, um að nauðsynlegt sé að fá meiri tíma til að undirbúa betur tilfærslu verkefna efnahagsbrotadeildar ríkislögreglustjóra til sérstaks saksóknara með tilliti til málastöðu deildarinnar og laga verklag að breyttu umhverfi. Þá þarf meiri tíma til undirbúnings vegna starfsmannamála, þ.e. vegna nýráðninga ef starfsmenn efnahagsbrotadeildar þiggja ekki starf hjá sérstökum saksóknara. Einnig þarf að undirbúa stækkun húsnæðisins vegna aukins fjölda starfsmanna o.fl. Nefndin leggur því til að gildistakan verði miðuð við 1. september 2011, en ákvæði til bráðabirgða öðlist þegar gildi.

Ég vil aðeins tæpa örstutt á lagaskilum því að fyrir nefndinni komu fram athugasemdir um að nauðsynlegt væri að kveða skýrt á um lagaskil, þ.e. varðandi ákæruvald í þeim málum sem ríkislögreglustjóri hefur ákært í og eru til meðferðar fyrir dómstólum. Í 1. gr. frumvarpsins er eingöngu vikið að yfirtöku á rannsóknarskyldu embættis sérstaks saksóknara. Nefndin fellst á þessi sjónarmið og telur nauðsynlegt að kveða skýrt á um að við gildistöku laganna flytjist ákæruvald og þar með sókn þeirra mála sem þegar sæta ákærumeðferð fyrir dómstólum af hálfu ríkislögreglustjóra frá embætti ríkislögreglustjóra til embættis sérstaks saksóknara.

Nefndin leggur til að frumvarpið verði samþykkt með þeim breytingum sem ég hef að mestu leyti tæpt á en eru lagðar til í sérstöku þingskjali.

Hv. þingmenn Valgerður Bjarnadóttir og Þór Saari voru fjarverandi við afgreiðslu málsins en undir það rita auk þess sem hér stendur Álfheiður Ingadóttir, Birgir Ármannsson, með fyrirvara, Vigdís Hauksdóttir, Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, Sigurður Kári Kristjánsson og Mörður Árnason.