139. löggjafarþing — 148. fundur,  10. júní 2011.

brottfall laga um ríkisábyrgð á lántöku Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta.

768. mál
[15:53]
Horfa

Frsm. fjárln. (Þuríður Backman) (Vg):

Hæstv. forseti. Ég mæli fyrir nefndaráliti fjárlaganefndar vegna máls nr. 768 á þskj. 1541, um frumvarp til laga um brottfall laga nr. 96/2009, um heimild til handa fjármálaráðherra, fyrir hönd ríkissjóðs til að ábyrgjast lán Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta frá breska og hollenska ríkinu til að standa straum af greiðslum til innstæðueigenda hjá Landsbanka Íslands hf..

Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Guðrúnu Þorleifsdóttur frá fjármálaráðuneyti og Þóru M. Hjaltested frá efnahags- og viðskiptaráðuneyti. Nokkur umræða var í nefndinni um 8. gr. laganna sem fjallar um endurheimtur á innstæðum. Það er mat nefndarinnar að ekki séu forsendur til að 8. gr. haldi ein gildi sínu.

Nefndin leggur til að frumvarpið verði samþykkt óbreytt.

Sigríður Ingibjörg Ingadóttir og Þór Saari voru fjarverandi við afgreiðslu málsins.

Undir nefndarálitið rita auk mín hv. formaður nefndarinnar, Oddný Harðardóttir, Kristján Þór Júlíusson, Björn Valur Gíslason, Valgerður Bjarnadóttir, Höskuldur Þórhallsson, Sigmundur Ernir Rúnarsson, Ásbjörn Óttarsson og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir.

Ég ætla að geta þess, hæstv. forseti, að ég flyt þetta nefndarálit í forföllum og fjarveru hv. þm. Oddnýjar Harðardóttur, formanns nefndarinnar. Nefndin stóð öll að samþykkt málsins.