139. löggjafarþing — 148. fundur,  10. júní 2011.

ráðstafanir í ríkisfjármálum.

824. mál
[16:42]
Horfa

Lilja Mósesdóttir (U):

Frú forseti. 9. grein fjallar um það að leggja eigi eignarskatt á lífeyrissjóðina og ég legg til í breytingartillögu minni að við fellum þetta ákvæði brott. Mér skilst að búið sé að semja hér á þinginu milli flokkanna um að ræða þessa grein í hv. efnahags- og skattanefnd og fella hana síðan brott. En þingmönnum gefst tækifæri hér og nú til að sýna að það skiptir ekki máli hvaðan gott kemur.