139. löggjafarþing — 157. fundur,  5. sept. 2011.

afbrigði um dagskrármál.

[15:02]
Horfa

Birgir Ármannsson (S) (um atkvæðagreiðslu):

Hæstv. forseti. Svo að það sé ekkert sérstaklega flókið fyrir hv. þm. Mörð Árnason eða aðra þingmenn er mér rétt og skylt að upplýsa að það sem fram kemur í áliti minni hluta umhverfisnefndar stendur, við leggjumst gegn frumvarpinu á þessu stigi. Verði breytingartillaga okkar samþykkt kann það að breytast.