málfrelsi þingmanna -- Magma-málið.
Frú forseti. Ég geri ekki athugasemdir við fundarstjórn forseta að öðru leyti en því hvernig hæstv. forseti bregst hér við svokallaðri kröfu frá varaformanni Sjálfstæðisflokksins, hv. þm. Ólöfu Nordal. Ég vek athygli forseta og annarra hv. þingmanna á ákvæði í þingsköpum þar sem segir að níu þingmenn, og ég hygg að þeir séu nokkru fleiri í Sjálfstæðisflokknum, því miður, geti óskað eftir skýrslu og ég hvet hv. þingmenn Sjálfstæðisflokksins til að nota sér þingsköpin, óska eftir skýrslu um aðkomu fjármálaráðherra að eignarhaldi að Hitaveitu Suðurnesja allt frá því í apríl 2007 þegar þáverandi fjármálaráðherra tók ákvörðun um að selja hlut ríkisins í HS Orku til einkaaðila.
Ég efast ekki um að hæstv. fjármálaráðherra er tilbúinn að bregðast við svona beiðni.
Ég vil svo segja að þó að Agnes Bragadóttir hnerri er ekki ástæða til að (Forseti hringir.) þingheimur allur leggist í pest.