139. löggjafarþing — 160. fundur,  8. sept. 2011.

beiðni um tvöfaldan ræðutíma.

[19:32]
Horfa

Forseti (Álfheiður Ingadóttir):

Forseta hefur borist bréf frá Ragnheiði E. Árnadóttur, þingflokksformanni Sjálfstæðisflokksins, um að þingflokkur Sjálfstæðisflokksins óski eftir að ræðutími við 2. umr. þingmáls 674, um Stjórnarráð Íslands, verði tvöfaldaður, sbr. 2. mgr. 55. gr. þingskapa, vegna mikilvægis málsins. Mun því ræðutími verða tvöfaldaður við 2. umr. málsins.