Fyrri ræða

139. löggjafarþing — 161. fundur,  12. sept. 2011.

eignarhald á HS Orku.

[10:40]
Hlusta - Horfa

Bjarni Benediktsson (S):

Frú forseti. Það er ekki að tilefnislausu sem spurt er. Flokksráð Vinstri grænna ályktaði um það að fyrirtækið skyldi aftur í samfélagslega eigu, en við heyrum nú á hæstv. forsætisráðherra að ekkert slíkt stendur til enda hefur hún núna loksins áttað sig á því að auðlindirnar sem þarna er um að ræða eru ekki í eigu HS Orku eða Magma. Það er grundvallaratriði. Þetta eru skýr skilaboð frá hæstv. forsætisráðherra um að Magma Energy og HS Orka eru ekki að fara að breyta um eignarhald. Það er ekki á prjónunum hjá ríkisstjórninni að gera eitt eða neitt frekar í málinu heldur láta það vera eins og það er enda hefur það allt saman staðist lög.

Ég fagna því að hæstv. forsætisráðherra vilji láta rannsaka málið. Við skulum þá bara taka frumkvæði á þinginu og fá dyggan stuðning forsætisráðherra þegar kemur að því að greiða atkvæði um slíka rannsókn. Er ekki sjálfsagt að rannsaka hvaðeina annað sem hún nefndi? Við skulum rannsaka aðdraganda þess að Ísland studdi árásirnar í Líbíu. Og við skulum rannsaka Icesave-málið, það liggur fyrir þingsályktunartillaga um það. (Forseti hringir.) Rannsökum endilega einkavæðingu bankanna einu sinni enn ef á þarf að halda en standið þá við eitthvað af þessum rannsóknum sem þið eruð alltaf að tala um. Við skulum endilega koma þessu í gegnum þingið.

Næsta ræða