139. löggjafarþing — 163. fundur,  14. sept. 2011.

tilkynning um dagskrá.

[10:31]
Horfa

Forseti (Ásta R. Jóhannesdóttir):

Klukkan 15 í dag fer fram umræða utan dagskrár um afskriftir banka og fjármálastofnana á skuldum heimilanna. Málshefjandi er hv. þm. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson. Velferðarráðherra Guðbjartur Hannesson verður til andsvara. Umræðan fer fram skv. 2. mgr. 50. gr. þingskapa og stendur í hálfa klukkustund.