139. löggjafarþing — 164. fundur,  15. sept. 2011.

lengd þingfundar.

[11:08]
Horfa

Forseti (Ásta R. Jóhannesdóttir):

Þrátt fyrir ákvæði 4. mgr. 10. gr. þingskapa, um lengd þingfunda, er það tillaga forseta að þingfundur geti staðið lengur í dag en þingsköp kveða á um. Er óskað eftir atkvæðagreiðslu um þessa tillögu forseta? (Gripið fram í: Já.) Óskað er eftir atkvæðagreiðslu um tillögu forseta og verður gengið til atkvæða.