139. löggjafarþing — 164. fundur,  15. sept. 2011.

Stjórnarráð Íslands.

674. mál
[14:41]
Horfa

Forseti (Unnur Brá Konráðsdóttir):

Forseti er að kanna hvenær hæstv. innanríkisráðherra mun mæta til umræðunnar. Miðað við fyrri upplýsingar verður það einhvern tímann í dag. Forseti tekur fram að kallað var eftir viðveru hæstv. forsætisráðherra og hæstv. fjármálaráðherra áðan og þeir hæstv. ráðherrar eru í húsi en funda nú með forseta Alþingis.