Stjórnarráð Íslands.
Forseti. Það eru sannarlega fróðlegar umræður um fundarstjórn forseta. Einn þingmaður hefur lýst yfir að á ferðinni sé versta frumvarp í sögu lýðveldisins og þótt víðar sé leitað en annar þingmaður kvartar yfir því að geta ekki gert það sem þarf að gera. Hann þarf að láta sjá sig í göngum og réttum í Reykv. s. Kallað er á ráðherra. Það eru tveir viðstaddir, hæstv. fjármálaráðherra og forsætisráðherra, kallað er á hæstv. innanríkisráðherra og hv. þm. Pétur H. Blöndal hefur kallað á umhverfisráðherra af ókunnum sökum. (VigH: Og þú kallar á Höskuld.) Menn koma upp í ræðustólinn og leika sér að þeim tíma sem er til ráðstöfunar. (VigH: Hættu þessum kvörtunum.)
Það var einu sinni spámaður sem ruddi óæskilegum mönnum frá musterinu í Jerúsalem með þeim orðum að þeir ættu ekki að gera hús hans að ræningjabæli. Sá leiðtogi sem hér er einn manna á vegg (Forseti hringir.) getur sagt í svipuðum stíl, að það sé óviðkunnanlegt að þingmenn árið 2011 geri hús hans að sirkustjaldi. (Gripið fram í.)