139. löggjafarþing — 164. fundur,  15. sept. 2011.

Stjórnarráð Íslands.

674. mál
[23:00]
Horfa

innanríkisráðherra (Ögmundur Jónasson) (Vg) (andsvar):

Hæstv. forseti. Hv. þingmaður beinir til mín mörgum spurningum sem erfitt er að svara í stuttu máli. Hv. þingmaður vill fá að vita hver er þungamiðjan í gagnrýni minni. Í greinargerð með frumvarpinu segir, með leyfi forseta, meðal annars:

„Í frumvarpinu er kveðið skýrar á um skipunar- og verkstjórnarvald forsætisráðherra.“

Þetta er þungamiðjan í gagnrýni minni.