139. löggjafarþing — 166. fundur,  17. sept. 2011.

úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála.

709. mál
[13:47]
Horfa

Birgir Ármannsson (S) (um atkvæðagreiðslu):

Hæstv. forseti. Ég tek undir orð hv. formanns umhverfisnefndar um samstarf og lausnir mála sem hafa í meginatriðum gengið vel í sambandi við framgang þessa máls. Við 3. umr. koma til atkvæða ákveðnar breytingartillögur sem komu til eftir málsmeðferð við 2. umr. og leiða af bæði lagatæknilegum atriðum og alþjóðlegum skuldbindingum og er í sjálfu sér góð sátt um breytingarnar að öðru leyti en einu sem ég mun skýra nánar þegar að því kemur í atkvæðagreiðslu.