140. löggjafarþing — 2. fundur,  3. okt. 2011.

stefnuræða forsætisráðherra og umræða um hana.

[19:50]
Horfa

Forseti (Ásta R. Jóhannesdóttir):

Tekið er fyrir eina dagskrármálið, stefnuræða forsætisráðherra og umræður um hana sem verður útvarpað og sjónvarpað úr Alþingishúsinu. Umræðurnar skiptast í þrjár umferðir. Forsætisráðherra hefur 20 mínútur til framsögu en aðrir þingflokkar en þingflokkur forsætisráðherra hafa 12 mínútur í fyrstu umferð, í annarri umferð hafa þingflokkarnir sex mínútur en í þeirri þriðju fimm mínútur hver þingflokkur.

Röð flokkanna er í öllum umferðum þessi: Samfylkingin, Sjálfstæðisflokkur, Vinstri hreyfingin – grænt framboð, Framsóknarflokkur og Hreyfingin.

Ræðumenn Samfylkingarinnar verða í fyrstu umferð Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra, Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra í annarri og Magnús Orri Schram, 7. þm. Suðvest., í þriðju umferð.

Ræðumenn fyrir Sjálfstæðisflokk verða Bjarni Benediktsson, 2. þm. Suðvest., í fyrstu umferð, Ólöf Nordal, 2. þm. Reykv. s., í annarri umferð og Birgir Ármannsson, 11. þm. Reykv. s., í þriðju umferð.

Ræðumenn fyrir Vinstri hreyfinguna – grænt framboð verða Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra í fyrstu umferð, í annarri Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra og í þriðju umferð Þráinn Bertelsson, 9. þm. Reykv. n.

Fyrir Framsóknarflokk tala Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, 8. þm. Reykv. n., í fyrstu umferð, í annarri Vigdís Hauksdóttir, 8. þm. Reykv. s., og í þriðju umferð Ásmundur Einar Daðason, 9. þm. Norðvest.

Fyrir Hreyfinguna tala í fyrstu umferð Birgitta Jónsdóttir, 9. þm. Reykv. s., í annarri Þór Saari, 9. þm. Suðvest., og í þriðju umferð Margrét Tryggvadóttir, 10. þm. Suðurk.

Síðust í fyrstu umferð tala þingmenn utan flokka: Lilja Mósesdóttir, 6. þm. Reykv. s., og Guðmundur Steingrímsson, 8. þm. Norðvest.