140. löggjafarþing — 3. fundur,  4. okt. 2011.

fjárlög 2012.

1. mál
[14:38]
Horfa

Oddný G. Harðardóttir (Sf) (um fundarstjórn):

Frú forseti. Ég hef séð það bréf sem Höskuldur Þórhallsson talaði um áðan og það er langt síðan ég hafði samband við ríkisendurskoðanda og bað hann um að leiðrétta þessi rangindi. (Forseti hringir.) Þá fékk ég þær upplýsingar að þessi nefnd hefði verið starfandi á árinu 2008. Hún hefur ekki verið (Forseti hringir.) starfandi síðan.